image
image
image
 
image
Siglingar í Adríahafinu
Siglingar um Adríahafið eru með þeim vinsælli í heiminum. Er þá nú aðallega verið að tala um siglingar í Króatíu. Slóvenía bíður eiginlega bara upp á dagsiglingar sökum stuttrar strandlengju, eða sem upphafsstaður til Króatíu, eða Ítalíu. Einnig eru siglingar í Svartfjallalandi að verða vinsælar. Mikið er um alls konar keppnir að ræða á þessum slóðum. Má þar nefna þá stærstu sem ber heitið Barcolana í Trieste, Ítalíu og fer fram í óktóber ár hvert og hafa yfir 2000 bátar tekið þátt í henni. Króatía hefur geypilega langa strandlengju og yfir 1000 eyjar til að skoða. Er þar mikil náttúrufegurð. Mikið af sérstökum stöðum er einungis hægt að sækja heim á bát. Einnig er gaman að leggjast að bryggju í gamalli virkisborg og njóta þess sem er þar á boðstólum. Veðurfar er afar gott þó ansi heitt geti orðið í júlí og ágúst.


Ógleymanlegt frí
Að sigla um á seglbát er engu líkt. Að hlusta á gjálfur sjávar við bát og vind í seglum er ótrúleg upplifun. Töluvert er af höfrungum á svæðinu og gaman að fá þá sér til fylgdar. Heitt í veðri, þá er bara að leggjast við akkeri í einhverri vík og fá sér sundsprett. Einnig er hægt að vera næturlangt í víkinni. Á mörgum stöðum er hægt að fara í land í léttabát og njóta kvöldverðar á veitingahúsi sem er eingöngu hægt að komast að sjóleiðina. Mikið er um góðar bátahafnir og gott að komast í menninguna aðeins, skoða fornar borgir og njóta breytilegs mannlífs.


Hér er hægt að fá upplýsingar um það sem er í boði

Hér er hægt að sjá aðstoðina sem við getum veitt


account login for free hit counter html code
www.hit-counter-download.com
image image image image image image image image image

image
image
image