
|
|
Dagsiglingar
Þeir sem koma til Portoroz geta lífgað upp á dvölina og brugðið sér í smá
skútusiglingu. Það er engu líkt að njóta þess að sigla, henda svo út
akkeri við ströndina og hoppa í tæran sjóinn.
Hægt er að fá 40 feta Elan skútu leigða í dagsiglingar frá Portoroz, Slóveníu.
Einnig er hægt að semja um lengri ferðir til 2ja eða 3ja daga. Hægt er fyrir
allt að 8 manns að fara í dagsiglingu.Hafa Samband
|

|
Skútu- eða bátaleiga
Ef vilji er fyrir að fá skútu eða bát til leigu í eina viku eða lengur þá getum
við fengið tilboð fyrir viðkomandi. Tilvalið er að tengja saman
viku siglingu og vikudvöl á hóteli. Hægt er að fá bát í nánast flestum höfnum í
Króatíu. Einnig er hægt að skipuleggja dvöl í Svartfjallalandi (Montenegro).Fjöldinn allur
er af bátahöfnum og hægt að velja sér marga næturstaði á siglingu um Adríahafið.
Hvort sem er í höfn eða í einhverri vík.
Hafa Samband
|

|
Skútukeppnir
Fjöldinn allur er af skútukeppnum í Adríahafinu. Nefna ber þá stærstu í Trieste,
Ítalíu, Barcolana.
Hefur hún verið haldin síðan 1969 og er með þeim stærri í heiminum.
Ótrúleg lífsreynsla að vera með hátt í 2000 skútum í keppni. Þar á meðal
þeir bestu í heiminum.
Mikið er af minni keppnum um helgar og svo einnig 3ja daga keppnum
(Marinada, Middle Adria Cup, Carnival regatta og Elan Cup).
Hægt er að útvega
báta til þáttöku í keppnunum.
Hafa Samband
|

|
Ferðatilhögun
Auðvelt er að komast á þessar slóðir. Á sumrin eru
Heimsferðir og
Terra Nova með vikuleg flug til Trieste,
Ítalíu í tengslum við ferðir á þessar slóðir. Hægt er að sjá um flutning frá flugvelli hvert sem er.
Þá er einnig hægt að fljúga með
Iceland Express til
London og þaðan áfram með Ryan
Air eða Easyjet til
margra borga í Króatíu.
Hafa Samband
|

|
|
|
|