Siglingar í Adríahafinu
Siglingar um Adríahafið eru með þeim vinsælli í heiminum. Er þá nú
aðallega verið að tala um siglingar í Króatíu. Slóvenía bíður eiginlega bara upp
á dagsiglingar sökum stuttrar strandlengju, eða sem upphafsstaður til Króatíu,
eða Ítalíu. Einnig eru siglingar í Svartfjallalandi að verða vinsælar. Mikið er
um alls konar keppnir að ræða á þessum slóðum. Má þar nefna þá stærstu sem ber
heitið Barcolana í Trieste, Ítalíu og fer fram í óktóber ár hvert og hafa yfir
2000 bátar tekið þátt í henni. Króatía hefur geypilega langa strandlengju og
yfir 1000 eyjar til að skoða. Er þar mikil náttúrufegurð. Mikið af sérstökum
stöðum er einungis hægt að sækja heim á bát. Einnig er gaman að leggjast að
bryggju í gamalli virkisborg og njóta þess sem er þar á boðstólum. Veðurfar er
afar gott þó ansi heitt geti orðið í júlí og ágúst.
Ógleymanlegt frí
Að sigla um á seglbát er engu líkt. Að hlusta á gjálfur sjávar við bát og
vind í seglum er ótrúleg upplifun. Töluvert er af höfrungum á svæðinu og gaman
að fá þá sér til fylgdar. Heitt í veðri, þá er bara að leggjast við akkeri í
einhverri vík og fá sér sundsprett. Einnig er hægt að vera næturlangt í víkinni.
Á mörgum stöðum er hægt að fara í land í léttabát og njóta kvöldverðar á
veitingahúsi sem er eingöngu hægt að komast að sjóleiðina. Mikið er um góðar
bátahafnir og gott að komast í menninguna aðeins, skoða fornar borgir og njóta
breytilegs mannlífs.

Hér er hægt að sjá aðstoðina sem við getum veitt
|